Við hjálpum skipulagsheildum að þróast hraðar

Í heimi örra breytinga þurfa skipulagsheildir að geta þróast hraðar en nokkru sinni fyrr til að halda í við umhverfið.

Axia vinnur með fyrirtækjum og stofnunum að því að móta skýra stefnu, innleiða breytingar með skilvirkum hætti og byggja um leið upp getu til að þróast hraðar, taka betri ákvarðanir og skapa raunverulegt virði.

Það sem við gerum

Fimm þættir sem við vinnum með til að tryggja árangur

Við vinnum með stjórnendum að þeim þáttum sem saman skapa forsendur fyrir árangri. Smelltu á hvern þátt til að sjá hvernig við getum hjálpað.

Stefna

Skýr stefna sem hjálpar stjórnendum að forgangsraða, taka betri ákvarðanir og skapa sameiginlega sýn.

Nánar

Skýr stefna er forsenda árangurs.

Margar skipulagsheildir hafa mótað stefnu en eiga erfitt með að nýta hana sem leiðarljós í daglegum ákvörðunum. Árangursrík stefna snýst ekki aðeins um framtíðarsýn heldur um skýra forgangsröðun, sameiginlegan skilning og tengingu við raunverulegar aðgerðir.

Axia vinnur með stjórnendum að því að móta skýra stefnu sem hjálpar skipulagsheildinni að einbeita sér að því sem skiptir mestu máli.

Við aðstoðum meðal annars við

  • Stefnumótun og endurskoðun stefnu
  • Mótun gervigreindarstefnu og forgangsröðun tækifæra
  • Stefnumiðaða forgangsröðun umbótatækifæra

Framkvæmd

Við hjálpum til við að breyta stefnu í framkvæmanleg verkefni með skýrum forgangi, ábyrgð og eftirfylgni.

Nánar

Góð stefna skapar ekki árangur nema henni sé hrint í framkvæmd með skilvirkum hætti.

Ein stærsta áskorun skipulagsheilda er bilið á milli stefnu og framkvæmdar. Verkefni verða of mörg, forgangsröðun óskýr og ábyrgð dreifist.

Axia hjálpar stjórnendum að breyta stefnu í markvissar aðgerðir með skýrri forgangsröðun, ábyrgð og eftirfylgni.

Við aðstoðum meðal annars við

  • Innleiðingu stefnu
  • Uppsetningu verkefnastofu og árangurseftirlit
  • Verkefnastjórnun stærri umbreytinga

Skipulag og hæfni

Við þróum skipulag, hlutverk og vinnulag sem gera skipulagsheildinni kleift að bregðast hraðar við breytingum.

Nánar

Skipulag sem gerir fólki kleift að ná árangri.

Skipulag þarf að styðja við stefnu og skapa skýra ábyrgð, gott samstarf og skilvirka ákvarðanatöku. Þegar skipulag, hlutverk eða vinnulag styðja ekki við markmiðin verður erfitt að ná árangri.

Axia vinnur með stjórnendum að því að þróa skipulag og hæfni sem gerir skipulagsheildinni kleift að bregðast hraðar við breytingum og nýta tækifæri betur.

Við aðstoðum meðal annars við

  • Skipulagsgreiningu og þróun skipulags og stjórnkerfa
  • Hlutverk, ábyrgð og stjórnskipulag
  • Endurhönnun vinnulags og ferla

Forysta

Við styrkjum leiðtogateymi þannig að þau geti leitt breytingar af skýrleika, ábyrgð og trúverðugleika.

Nánar

Sterk forysta er forsenda varanlegra breytinga.

Breytingar ná ekki árangri nema stjórnendur séu samstíga, taki ábyrgð og leiði með skýrum hætti. Árangursrík forysta skapar umhverfi þar sem fólk skilur tilganginn, veit hver stefnan er og hefur getu til að leggja sitt af mörkum.

Axia vinnur með stjórnendum og leiðtogateymum að því að styrkja sameiginlega sýn, ákvarðanatöku og hæfni til að leiða breytingar.

Við aðstoðum meðal annars við

  • Leiðtogavinnustofur
  • Hlutverk og ábyrgð stjórnenda
  • Breytingastjórnun og innleiðingu umbótamenningar

Árangur og virði

Við hjálpum stjórnendum að tengja fjármagn, verkefni og árangur þannig að auðveldara sé að sjá hvað skilar raunverulegu virði.

Nánar

Það sem skiptir máli þarf að vera sýnilegt.

Skipulagsheildir þurfa að geta svarað einfaldri spurningu: Hvaða árangri viljum við ná og hvernig mælum við hann?

Axia hjálpar stjórnendum að tengja saman stefnu, verkefni, fjármagn og árangur þannig að auðveldara sé að taka upplýstar ákvarðanir og hámarka virði.

Við aðstoðum meðal annars við

  • Árangursstjórnun
  • OKR innleiðingu
  • Tengingu stefnu og fjárhagsáætlana
  • Forgangsröðun fjárfestinga

Hafa samband

Ræðum stöðu þinnar skipulagsheildar

Bókaðu stutt kynningarsamtal þar sem við förum yfir helstu áskoranir og metum hvar mestu tækifærin liggja hjá þinni skipulagsheild.

Takk fyrir fyrirspurnina — við höfum samband innan skamms.
Því miður tókst ekki að senda — reyndu aftur síðar.